Allar almennar tjónaviðgerðir

Allar viðgerðir unnar af
fagmönnum með bestu
mögulegu efnum.

Fagmenn í yfir 35 ár

Vinnum fyrir öll
tryggingafélög

VÍS, TM, Vörður, Sjóvá
Reynsla - Vandvirkni - Gæði

Yfir þriggja
áratuga reynsla

Komdu með bílinn til okkar og við metum hann og lögum eftir tjónið.

Tjónamat

Bílaréttingar Sævars er viðurkennt verkstæði hjá öllum tryggingafélögum landsins, við notum Cabas tjónmatskerfi sem er tengt miðlægum gagnagrunni allra tryggingafélaganna sem tryggir öruggt tjónamat og tjónaskoðun, því þarf ekki að fá tryggingafélagið til að meta tjónið.

Bílasprautun

Sprautun bíla er nákvæmisvinna og því notumst við einungis við hágæða efni frá Spies Hecker. Bílamálarar okkar eru stöðugt að endurmennta sig svo bíllinn þinn fái aðeins það besta.

Bílaréttingar

Við erum sérfræðingar í bílaréttingum, bílasmiðirnir okkar hafa áratuga reynslu í réttingum og leggjum við mikla áherslu á að okkar starfsólk sé stöðugt að endurmenta sig í nýjustu og bestu tækni hverju sinni.

Um okkur

Bílaréttingar Sævars var stofnað árið 1985 af Sævari Péturssyni og hefur verið starfrækt síðan með góðum árangri. Árið 2014 lét Sævar af störfum og við stjórnartaumunum tók Gestur Sævarsson bifreiðarsmiður.

Bílaréttingar Sævars var upphaflega með sína starfsstöð í Skeifunni 17 og var starfrækt þar í 16 ár, eftir það flutti verkstæðið upp á Bíldshöfða 5a en árið 2006 flutti verkstæðið niður í Skútuvog 12h. Árið 2020 færði verkstæðið sig um nokkur húsnúmer eða í Skútuvog 4. Þúsundir bifreiða hafa fengið meðhöndlun okkar fagmanna hvort sem er við réttingar eða sprautun. Við leggjum mikinn metnað í okkar viðgerðir og trúum því að ánægður viðskiptavinur sé besta auglýsingin.

Af hverju ættirðu að velja okkur?

  • Áratuga reynsla
  • Snöggur afgreiðslutími (3-5 dagar fyrir viðgerð og sprautun)
  • Notum einunungis hágæða efni í okkar viðgerðir
  • Allir okkar starfsmenn eru með réttindi til viðgerða
  • Vinnum fyrir öll tryggingarfélög og bifreiðaumboð
  • Færð bílinn hreinan að viðgerð lokinni
  • Fagleg vinnubrögð unnin af menntuðum fagmönnum
STAÐSETNING

Við erum í Skútuvogi 4!

Hafðu samband

Hafa samband